50. ára og flottust á Sigló júlí 2008

Kæru jafnaldrar, bekkjarfélagar og makar.

Ég þakka kærlega fyrir ógleymanlega helgi fyrir okkur Dodda, þið á Sigló stóðuð ykkur frábærlega í höfðinglegri móttöku fyrir okkur.

Ég sendi nokkrar myndir frá helginni og vona að þið rifjið upp tölvu kunnáttuna, skellið inn myndum af helginni, ykkur og fjölskyldum.

Mig langar mikið til að sjá myndir af afleggjurunum ykkar bæði börnum og barnabörnum.

Ég fer í það næstu daga að hlaða inn myndum af öllum mínum börnum og barnabörnum..

Enn og aftur takk fyrir helgina, við verðum hittast sem fyrst aftur og það væri æðislegt af hafa Sigló ball í Salthúsinu Grindavík með haustinu fá Stúlla til af smala saman góðu liði í band og Jón á Sleitó með sætaferð..ha..ha þaðan er margs að mynnast.

Ég sendi svo öllum aftur aðgangsorð af stjórnborði til að þið getið farið að græja blogg og myndir.

Kærar kveðjur Kristín Sig og Doddi  Heart


Árgangur 1958

Sæl krakkar.

Ég stofnaði þetta blogg fyrir okkur til að spjalla , kynnast aftur og rifja upp gamlar minningar.

Einnig setti ég inn nokkrar gamlar myndir, það væri gaman ef allir skelltu inn gömlum og nýjum myndum af sér og sínum.

Kær kveðja.

Kristín Sigurjóns

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband